bardagablogg

Bardagar, blóð og skemmtilegheit

Month: December, 2012

Cage Warrior 51 — Lightweight titil bardagi

Þegar það er risa UFC „event“ þá gleymast oft bardagar annars staðar í heiminum. Yfir nýárs helgina eru nokkur önnur „event“ víðsvegar um heiminn. Ég ætla að fjalla hér um bardaga sem fer fram í Jemen á nýársdag.

Image

Conor McGregor vs. Ivan Buchinger — Cage Warrior (Lightweight Title)

Conor er Mjölnismönnum mjög vel kunnugur. Hann var á Íslandi við æfingar síðast haust og kom aftur í rúman mánuð og var við æfingar til að undirbúa sig fyrir þennan bardaga með Gunnari Nelson og keppnisliði Mjölnis frá október fram í nóvember. Conor er mjög góður boxari, hraður, agressívur, teknískur með kraft til að rota menn. Hann er heldur enginn auli í gólfinu. Hann fékk fjólubláabeltið sitt í BJJ í nóvember frá þjálfara sínum John Kavanagh og Gunnnari Nelson hér á Íslandi. Þessi bardagi er fyrir „Lightweight“ (155) titil Cage Warrior samtakanna. Conor er „Featherweight“ (145) meistari Cage Warrior og stefnir að vera meistari í tveimur þyngdarflokkum. Conor er algjör morðingi, byrjar hratt og gefur engan grið. Keyrir beint í andlit andstæðinga með takmarkið að senda þá í draumaheiminn. Andstæðingur hans er enginn auli, hann virðist á því sem ég hef séð af honum vera góður á felstum stöðum þó svo að ég sé ekki alveg viss um wrestlingið hans. Ivan hefur unnið tuttugu og einn bardaga og tapað þrem. Tvö þessara tapa hafa komið á móti mönnum sem er í UFC í dag. Hann hefur unnið þrjá í röð og er titlaðu sem einn af topp tíu léttviktar bardagamönnum frá Evrópu. Reikna má að hann verði stærri en Conor því að hann er náttúrulegur LW en Conor mun þá líklega verða hraðari. Báðir menn eru ungir Ivan (26) og Conor (24) og ef Conor vinnur þennan bardaga er líklegt að hann fari að banka á dyrnar hjá stærri samtökum. Eina slæma sem ég hef að segja um Ivan er að hann hefur tapað þegar hann hefur tekið á móti topp andstæðingum, Ég held að sjálfsögðu með Conor og spái honum sigur. Hann er frá bræðra „gymi“ Mjölnis SBGi Ireland og má vonandi reikna með að sjá meira af honum á íslandi á næstu árum.

Video af Conor:

http://www.youtube.com/watch?v=myj864DW3Eg

http://www.youtube.com/watch?v=TOggje_FuNg

http://www.youtube.com/watch?v=myj864DW3Eg

Video af Ivan:

http://www.youtube.com/watch?v=iugmm48JLkg

http://www.youtube.com/watch?v=TTdh8LRY3OY

http://www.youtube.com/watch?v=F82kKf6rs2w

Mín spá: Conor TKO 2 Lota

Vinsælustu íþróttafréttir 2012

Vinsælustu íþróttafréttir 2012

Greinilegt að áhugi á mma fer gífurlega vaxandi á Íslandi. Ef að spárnar erlendis eru réttar um að að 2013 verð ár Gunna verður gaman að sjá hvort það fari ekki að koma meiri umfjöllun um mma erlendis á íslenska fjölmiðla.

UFC 155 Main Event

UFC geymir það stærsta og besta fyrir lok ársins þá er komið að því. Vonandi að þetta „card“ standi undir nafni.

Hér að neðan eru mínar pælingar og spár.

Image

Chris „The Crippler“ Leban vs. Derek Brunson

Gaman að sjá Leben koma aftur eftir keppnisbann vegna lyfjamisferli. Hann hlaut að vera á eiturlyfjum miðað við hverni hann klæddi sig og slóst. Hann barðist síðast í nóvember 2011 og tapaði fyrir Mark Munoz. Hann fær „built up fight“ því hann er stjarna sem þarf að endurskipuleggja ímynd sína. Leban er ekki að fara að berjast um neina titla en hann er stjarna og mjög vinsæll. Einn af upprunalegu Ultimate Fighter keppendunum og er í uppáhaldi hjá yfirmönnum UFC. Derek er því að mínu mati fórnalamb. Þeir eru að losa sig við hann af launaskrá. Hann er með samning við Strikeforce og er einn af þeim fyrstu sem þeir taka yfir í UFC eftir dauða Strikeforce. Hann hefur helst unnið sér til frægðar að tapa fyrir Kendall Grove og Jacare Souza.

Mín spá: Leban TKO 1 lota

Image

Yushin Okami vs. Alan Belcher

Þetta er alvöru bardagi. Belcher er að gera sig líklegan að verða „Contender“ í MW deildinni í UFC. Hann hefur barist í UFC frá því 2006, barist þrettán bardaga, unnið níu og tapað fjórum. Fyrsti bardagin hans í UFC var gegn Okami sem að Okami vann á dómaraúrskurði. Belcher hefur helst unið sér það til frægðar að fara í gólfið með Phalares og haft betur. Einnig er hann frægur fyrir mjög ósmekklegt tattoo af Johnny Cash. Bardagi Okami við Belcher var líka hans fyrsti í UFC en hann hefur barist fimmtán sinnum í heildina unnið ellefu og tapað fjórum. Hann barðist árið 2011 við Anderson Silva um titilinn en tapaði líkt og allir gera. Því næst tapaði hann á óskiljanlegan hátt fyrir Tim Boetsch sem hann lamdi sundur og saman í tvær lotur og var svo rotaður. Þó svo að hann hafi tapað þessum tveim er hann samt topp fimm MW og þetta verður erfiður bardagi fyrir Belcher.

Mín spá: Okami DEC

Image

Tim Boetsch vs. Costa Philippou

Maðurinn sem vann Okami á óskiljanlegan hátt og vann svo Lombard í leiðinlegasta bardaga ársins 2012 er mættur. Hann átti upprunalega að berjast við Chris Weidman sem „Title Eliminator“, en vegna meiðsla Weidman kom Costa í staðinn. UFC virðist hafa litla trú á Tim sem hefur unnið fjóra í röð. Hins vegar ætti Costa ekki að vera mikil áskorun. Hann hefur reyndar unnið fjóra í röð en ekki á móti stórum nöfnum. Costa er flottur boxari með gott „Takedown Defense“ en ég held að Tim skelli honum samt á hausinn.

Mín spá: Boetsch DEC

Image

Jim Miller vs. Joe Lauzon

Verðlaunabónussafnararnir eru mættir. Fjórtán bónusar sem hafa flestir verið unnir af Lauzon. Þetta verður eitthvað. Lauzon er mjög skemmtilegur bardagamaður sem virðist bögglast gegn þeim bestu. Hann er með svakalegt „ground game“ og finnst ekki leiðinlegt að rífa í útlimi og að reyna að svæfa menn. Miller er hins vegar enginn auli. Ekki er langt síðan að hann vann sjö bardaga í röð. Hann hefur aðeins tapað nýlega fyrir Nate Diaz og meistaranum í LW Benson Henderson. Stóra spurningin er hvort Miller sé of góður fyrir Lauzon. Þeir eru báðir mjög góðir í gólfinu svo þetta verður hugsanlega barátta standandi. Þeir sem hafa áhuga að sjá hæfileika Lauzon geta séð nýlegt video ef honum hér.
http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=5f2S7hmUuhA

Mín spá: Miller SUB 2 lota

Image

Junior Dos Santos vs. Cain Velasquez

Stóru mennirnir eru mættir. Ótrúlegt hvað allir halda að Cain muni geta eitthvað í annað sinn. Mér er drullusama ef hann var meiddur í fyrsta bardaganum, hann entist varla í mínútu. Horfði á fréttamannafund fyrir „event-ið“ áðan og allir að tala við Cain eins og hann sér einhver hetja. Þetta er jú Brazilía vs. Mexíkó en hann er enginn alvöru Mexíkani. Fæddur í Bandaríkjunum, alinn upp í Arizona og fyrir einhverja undalega ástæðu, t.d. hárgreiðsluna í æsku eða að hann berjist fyrir stolt Mexíkó, fer hann óstjórnlega í taugarnar á mér. Dos Santos mun rota hann aftur og fá bardagann sem allir vilja á móti Overreem.

Mín spá: Dos Santos KO 1 lota

UFC 155 FX prelims

Image

Þá er komið að sjónvarpaða hluta „undercard“ UFC 155. Mjög spennandi bardagar sem að gætu flestir verið á „main event“ á hvaða UCF „cardi“ sem er.

Hér að neðan eru mínar pælingar og spár.

Michael Johnson vs. Myles Jury

Johnson hefur litið rosalega vel út síðan að hann gekk til liðs við Blackzilians. Boxið og kickboxið hans hefur litið rosalega vel út nýlega. Hann hefur unnið þrjá í röð og allt gegn erfiðum andstæðingum. Jury er ósigraður, 10-0 sem atvinnumaður, þó svo að hann hafi tapað í raunverleikaseríunni The Ultimate Fighter. Hann hefur unnið einn bardaga í UFC en hefur hann aldrei lent á móti neinum á borð við Johnson. Ég held að Johnson sér mun sterkari og mun meiri íþróttamaður og muni mannhöndla Jury. Ofan á það fær hann plús í kladdann fyrir þetta hræðilega video sem hann gerði til að skjóta á Jury fyrir bardagann. http://www.youtube.com/watch?v=AnfY34dLK-Q

Mín spá: Johnson TKO 2 lota

Melvin Guillard vs. Jamie Varner

Mikið „hype“ í kringum þennan bardaga. Hann átti að fara fram í Ultimate Fighter Finale 16 en Varner veiktist í kjölfar að hann var að létta sig fyrir bardagann. Orðaskipti hafa farið á milli og heldur Guillard því fram að Varner sé hræddur við sig. Ég myndi líka skilja það mjög vel því Melvin er „nasty“ og væri ég skíthræddur ef ég þyrfti að berjast við hann. Þó svo að hann eigi í erfiðleikum með wresterla þá sé ég greyið Varner ekki eiga séns. Guillard er bara mun betri.

Mín spá: Guillard TKO 1 lota

Erik Perez vs. Byron Bloodworth

Ég verð að játa fávisku mína hér. Titurlega nýjir menn í UFC sem að berjast í Bantamweight (135) sem er nýleg deild í UFC. Þess vegna hafa bardagar í þessari deild yfirleitt farið fram á facebook hluta kvölda. Hins vegar man ég eftir Erik Perez og skuggalegu rothöggi hans á Ken Stone. Flottur sigur og var það fljótasta rothögg í BW sögu WEC og UFC. Byron veit ég ekkert um nema að hann tapaði mjög leiðinlegum bardaga fyrir „Hulk“, Mike Easton. Þetta verður partý fyrir Perez.

Mín spá: Perez TKO 1 lota

Brad Pickett vs. Eddie Wineland

Þetta er „high profile“ bardagi í BW deildinni. Tveir reyndir menn sem hafa báðir barist stóra bardaga og var Wineland meðal annars BW meistar í WEC. Hins vegar hefur margt vatn runnið til sjávar síðan. Þeir hafa saman safnað verðlaunum fyrir framistöður sínar í peningabónusum frá UFC og því má búast við flugeldum. Sjö sinnum samtals hafa þeir fengið bónusa í WEC og UFC. Þetta verður hraður og skemmtilegur bardagi en tel ég að Pickett sé betri heildar bardagamaður og Wineland gæti lent í vandræðum í gólfinu. Þeir eru báðir með kraft til að rota í næst hröðustu deild UFC sem er ekki algengt. Það má búast við viltum högg í báðar áttir þar til eitthvað rosalegt gerist.

Mín spá: Ég spái að Pickett taki Wineland niður og klári hann þar. Sub 2 lota

UFC 155 Facebook prelims

ImageFyrsti pósturinn og fjallar hann um þrjá bardaga sem eru á facebook hluta síðasta og jafnframt á pappírunum besta UFC „event“ 2012.

Hér að neðan eru mínar pælingar og spár.

Chris Cariaso vs. John Moraga

Til að byrja kvöldið eru tveir eldsnöggur „Flyweights“ (125 pund). Sigurvegarinn ætti að komast nálægt því að berjast um titillinn því þetta er nýjasta deild UFC og sú þynnsta. Báðir menn eru með einn sigur í FW. Moraga hefur unnið fimm bardaga í röð og einn þeirra kom í UFC. Hann er sterkur wrestler sem hefur bæði keppti í 145 og 135 punda flokki. Eina tap hans á ferlinum er á móti John Dodson sem er næstur að berjast um FW tiltillinn. Moraga er flottur í gólfinu þó svo að hann hafi klárað menn standandi. Hann er með betri ferilskrá og þremur árum yngri en andstæðingur sinn. Þó svo að hann hafi ekki keppt við jafn erfiða andstæðinga virðist hann mun agressívari og klárar menn. Cariaso er þó mun reyndari. Hefur keppt fimm bardaga í UFC og keppti tvo í systra félagi þeirra WEC. Hans einu töp á þessum tíma eru á móti „Interm Bantamweigt“ meistaranum Renan Barao og manninum sem er hans næsti andstæðingur Michael MacDonald. Hann rétt tapaði í skiptum dómara úrskurði á móti MacDonald í mjög jöfnum og flottum bardaga. Báðir bardagarnir voru í BW (135). Hann hefur unnið flesta bardaga sína á dómaraúrskurði eftir að hann steig á stórasviðið, stærstu sigrar hans eru á móti Vaughan Lee og Takeya Mizugaki.

Mín spá: Veðja á reynsluna, Cariaso DEC

Leonard Garcia vs. Max Holloway

Afsakið en róninn Garcia fær eitt loka tækifæri vegna þess að hans bardagar eru yfirleitt skemmtilegir (að mati Dana White forseta UFC). Hann er róni vegna þess hvernig hann berst. Vel þjálfaður bardagamaður sem gleymir öllu þegar hann stígur inn í hringinn og dettur í götuslagsmál. Hann hefur ekki unnið bardaga nema á „split dec“ síðan hann vann Jens Pulver í WEC nóvember 2008. Persónulega finnst mér hann pirrandi og held að hann tími í UFC sé búinn. Maðurinn til að losa mig við hann er Max Holloway. Ungur teknískur og í síðasta bardaga vann hann hinn mikismetna (en samt ofmetna) Justin Lawrence. Hann er vissulega óreyndur en hefur litið mjög vel út í síðustu tveim bardögum sínum í UFC. Eina tap hans er geng hinum geysi sterka Dustin Poirier sem var hans fimmti atvinnumannabardagi og hans fyrsti í UFC. Ég spái að þetta verði stökkpallur fyrir Holloway þar sem Garcia er nafn og muni lenda á móti topp 15 FW í næsta bardaga.

Mín spá: Holloway DEC

Todd Duffee vs. Phil De Fries

Yes, yes, yes. Duffee er kominn tilbaka. Fyrsta skipti þegar ég sá hann, hugsaði ég, þetta verður eitthvað. Viti menn hann rotaði Tim Hague á sjö sekúndum. Svo á óskiljanlega hátt tapaði hann fyrir Mike Russow. En hvað með það. Hann er kominn aftur, herra GI Joe. Hann er með handsprengjur í höndunum, vaxinn eins og Herkúles og með ágætis „takedown defense“. Hann er kannski ekki að fara að vinna UFC titil á næstunni en hann er samt skemmtilegur. Phil De Fries er ágætis BJJ gæji frá Englandi sem hefur unnið flesta sína baradaga á svæfingatökum. Hann tapaði fyrir Miocic, sem tapaði fyrir Struve af öllum. Ég held að þetta verði stuttur bardagi og annar hvor aðili mun fara að sofa í fyrstu lotu.

Mín spá: Duffee TKO 1 lota